Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Ertu að kaupa fyrstu íbúðina?

Notaðu séreignarsparnaðinn þinn til að fjármagna þína fyrstu íbúð - og það skattfrjálst! Fyrstu kaupendur geta sótt um allt að 85% lán. Greiddu í einn mánuð í sjóðinn og þú færð lánsrétt.

LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 7 0223 LIV Lifeyrissjodur Verzlunarmanna Myndabanki 7 0223

Auðveldaðu fyrstu íbúðakaupin 

Þú getur nýtt uppsafnaðan séreignarsparnað til útborgunar við kaup á fyrstu íbúð. Þú getur jafnframt sótt um allt að 85% lán til fyrstu kaupa hjá sjóðnum.  

Fyrsta skrefið er að safna í séreignarsparnað

Þegar þú safnar 2-4% af launum í séreignarsparnað bætir launagreiðandi 2% við. Þessari upphæð máttu ráðstafa sem útborgun í fyrstu íbúðarkaup um allt að 500.000 kr á ári í 10 ár. 

  • Veldu séreignarsparnað sem er laus við óþarfa kostnað, söluþóknanir og bindingu. 
  • Ef þú nærð ekki upp í hámörkin þá gætirðu bætt við tilgreindri séreign. Þá tekur þú hluta af lögbundna iðgjaldinu og færir í tilgreinda séreign á Mínum síðum
Eignasafn Sveiflur Nafnávöxtun (%)
1 ár 3 ár 5 ár Stofnár Opin
Ævileið III
7,3% 4,7% 4,3% 2017
Ævileið II
9,9% 3,6% 6,5% 2017
Ævileið I
12,3% 3,9% 8,4% 2017
Verðbréfaleið
12,6% 6% 9,8% 1999 Nei

Nafnávöxtun tímabila, m.v. gengi 30.11.2024

Fáðu allt að 85% lán til fyrstu kaupa  

Fyrstu kaupendur hafa lánsrétt hjá sjóðnum þegar þeir hafa einu sinni greitt til sjóðsins eða greitt einu sinni í séreign. Hægt er að sækja um allt að 85% lán þar sem grunnlánið er 70% og viðbótarlán er 15% í samfelldri veðröð frá fyrsta veðrétti.

  • Grunnlánið getur verið verðtryggt eða óverðtryggt með föstum eða breytilegum vöxtum. Lánstími er frá 5 til 40 ára.
  • Viðbótarlánið er óverðtryggt með fasta vexti í 3 ár og hefur 0,75% vaxtaálag ofan á. Hámarks lánstími fyrir viðbótarlán er 25 ár.
  • Ekkert uppgreiðslugjald er á húsnæðislánum og er hægt að greiða þau upp, eða greiða inn á þau hvenær sem er án kostnaðar.
  • Hægt er óska eftir greiðsluhlé húsnæðislána vegna fæðingarorlofs.

Við vekjum athygli á að samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má hlutfall greiðslubyrðar húsnæðislána af tekjum ekki vera hærra en 40% hjá þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti.

Jenný Jóhannsdóttir Jenný Jóhannsdóttir

Jenný Ýr Jóhannsdóttir

lífeyrissvið

Það er erfitt að finna hagkvæmari sparnað en séreignarsparnað þar sem þú færð strax mótframlag frá launagreiðanda sem jafngildir frá 50-100% ávöxtun. Að geta nýtt sparnaðinn skattfrjálst til að eignast eigið húsnæði er svo enn meiri ávinningur.

Greitt Inn Á Lán

Byrjaðu að spara í séreign!

Það er einfalt að stofna séreignarsparnað hjá okkur. Skráðu þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum og við látum launagreiðandann vita.

Gera samning um séreignarsparnað

Spurt og svarað um fyrstu kaup og séreignarsparnað

Hvar sæki ég um?

Þú sækir um á vef skattsins. Í umsókninni þarftu að tilgreina hjá hverjum sparnaðurinn er (vörsluaðili), hvar lánið þitt er og hvert upphafstímabil á að vera. 

Skoðaðu vel hvaða upphafstímabil þú velur. Það getur verið óhagkvæmt að velja að nýta séreignarsparnað sem safnaðist á tímabili sem  þú varst ekki í fullri vinnu því þá nærðu ekki að fullnýta heimildina, sem er 500.000 kr á ári.

Þetta er einstaklingsúrræði og þarf því hver og einn að sækja um fyrir sig, hvort sem hann er í hjúskap, sambúð eða einhleypur.

Ég er ekki með séreignarsparnað, hvað get ég gert?

Fyrsta skrefið er að gera samning um séreignarsparnað hér á síðunni og sækja svo um á vef Skattsins.

Kostar þjónustan mig eitthvað?

Nei, Lífeyrissjóður verzlunarmanna annast umsýslu við að greiða inn á lán án kostnaðar fyrir sjóðfélaga og án nokkurra takmarkana annarra en lagaheimilda. 

Við hvetjum þá sem eru að skoða þennan kost og eru með séreignarsparnað hjá öðrum vörsluaðila til að kanna sérstaklega hvort þeirra vörsluaðili innheimtir kostnað eða setur takmörk á notkun séreignar en það er raunin hjá sumum erlendum aðilum.

Get ég nýtt tilgreinda séreign?

Já, með breytingu á lögum um lífeyrissjóði í janúar 2023 er hægt að nýta tilgreinda séreign við fyrstu kaup að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

  • Ef þú ert að greiða í séreignarsparnað þarft þú fyrst að nýta hann áður en þú nýtir tilgreindu séreignina.

  • Tilgreind séreign er að jafnaði greidd með eingreiðslu í lok hvers almanaksárs, eða þegar liggur fyrir hversu há upphæð hefur verið nýtt með séreignarsparnaði. 

  • Hægt er að nýta iðgjöld tilgreindrar séreignar sem greidd hafa verið frá og með 1. janúar 2023.

Ég hef átt íbúð en ekki síðastliðin fimm ár, get ég nýtt séreignarsparnaðinn minn?

Já, þú getur nýtt séreignarsparnað þinn ef þú hefur ekki átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár áður en þú sækir um ef:

  • þú hefur ekki áður fullnýtt skattfrjáls úrræði um ráðstöfun séreignarsparnaðar.

  • þú hefur ekki hærri tekjuskattsstofn að meðtöldum heildarfjármagnstekjum en 12.481.272 kr. fyrir árið 2022. 

  • hvorki þú né samskattaður maki þinn hafið verið eigendur að íbúðarhúsnæði.

Hver eru helstu skilyrðin til að nýta séreign til fyrstu kaupa?

  • Gildir við fyrstu kaup á íbúð eða ef þú hefur ekki átt íbúðarhúsnæði í fimm ár.
  • Þú getur nýtt að hámarki 500.000 kr. á ári í samfellt 10 ár.
  • Samningur um séreignarsparnað þarf að vera fyrir hendi.
  • Þú þarft að eiga að minnsta kosti 30% eignarhlut í eigninni.
  • Þú sækir um á vef Skattsins þar sem nánari upplýsingar fást.

Spurt og svarað um lán til fyrstu kaupa á húsnæði

Hverjir geta sótt um lán til fyrstu kaupa?

Ef þú hefur greitt til sjóðsins að minnsta kosti einu sinni þá hefur þú lánsrétt. Ef þú hefur ekki greitt til sjóðsins áður en þá geturðu valið hvort þú greiðir skylduframlagið til okkar eða í séreignarsparnað

Smelltu hér til að kynna þér kosti þess að velja Lífeyrissjóð verzlunarmanna.  

Hversu hátt má veðhlutfallið vera?

Fyrstu kaupendur geta með viðbótarláni fengið allt að 85% veðsetningu. Grunnlánið er 70% og viðbótarlán 15%. 

Hvaða vextir eru á lánum til fyrstu kaupa?

Þú finnur vextina í vaxtatöflu og í lánareiknivél.