Þú átt rétt á láni ef þú hefur greitt iðgjöld í 6 af s.l. 12 mánuðum fyrir umsókn eða í samtals 36 mánuði fyrir umsókn.
Skráðu þig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður til að staðfesta hvort þú átt lánsrétt.
Verðtryggð lán eru annaðhvort með fasta vexti út lánstímann eða með fasta vexti í 60 mánuði.
Fastir vextir út lánstímann haldast óbreyttir óháð því vaxtastigi sem ríkir hverju sinni. Þess vegna er lántakinn ekki berskjaldaður fyrir breytingum á vaxtakjörum.
Fastir vextir í 60 mánuði eru endurskoðaðir á 60 mánaða (5 ára) fresti og geta þá, eftir atvikum, tekið breytingum. Þegar vaxtatímabilinu lýkur eftir 60 mánuði, tekur við nýtt 60 mánaða vaxtatímabil á þeim vöxtum sem þá eru í gildi.
Stjórn sjóðsins ákvarðar vexti og breytingar á þeim samkvæmt nánari ákvæðum í skilmálum skuldabréfs.
Það þýðir að afborganir eru jafnar út lánstímann, þó þannig að þær breytast í takt við breytingu vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Lántaki greiðir höfuðstólinn hægar niður fyrstu árin en afborgun af höfuðstól fer svo stigvaxandi eftir því sem líður á lánstímann. Heildarvaxtakostnaður við lánið er því hærri en af lánum sem bera jafna afborgun á höfuðstól. Á móti kemur að mánaðarleg afborgun er lægri.
Það þýðir að afborganir af höfuðstól eru þær sömu út lánstímann að teknu tilliti til hækkunar vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Slík lán greiðast því nokkuð hraðar niður en lán með jöfnum greiðslum og er því heildarvaxtakostnaður við þau lægri.
Verðtryggð lán hafa almennt lægri greiðslubyrði, a.m.k. til að byrja með, í samanburði við óverðtryggð sjóðfélagalán og verður þess vegna eignamyndun hægari.
Verðtryggð lán
Óverðtryggð lán
Eiginleikar
Eiginleikar
Lægri greiðslubyrði a.m.k. til að byrja með.
Hærri greiðslubyrði a.m.k. til að byrja með.
Gott að hafa í huga
Gott að hafa í huga
Verðtryggð lán
Eiginleikar
Lægri greiðslubyrði a.m.k. til að byrja með.
Gott að hafa í huga
Óverðtryggð lán
Eiginleikar
Hærri greiðslubyrði a.m.k. til að byrja með.
Gott að hafa í huga
Jafnar greiðslur
Jafnar afborganir af höfuðstól
Eiginleikar
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Gott að hafa í huga
Jafnar greiðslur
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Jafnar afborganir af höfuðstól
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Þú átt rétt á láni ef þú hefur greitt iðgjöld í 6 af s.l. 12 mánuðum fyrir umsókn eða í samtals 36 mánuði fyrir umsókn.
Skráðu þig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður til að staðfesta hvort þú átt lánsrétt.
Aðeins er lánað gegn íbúðarhúsnæði á Íslandi í eigu lántaka.
Áhvílandi uppreiknaðar veðskuldir að viðbættu láni sjóðsins, mega við lánveitingu ekki vera umfram 70% af verðmæti veðs eins og það er tilgreint í grein þessari.
Ef veðsetning vegna lántöku eða veðflutnings lána hjá sjóðnum er umfram 65% er almennt gerður áskilnaður um að veðsetning til þriðja aðila (annars en Lífeyrissjóðs verzlunarmanna) nemi ekki hærra hlutfalli en 20% af metnu virði veðsins.
Veðsetning skal reiknuð út frá söluverði samkvæmt kaupsamningi þegar um lánveitingar í tengslum við fasteignaviðskipti er að ræða. Annars skal miða við gildandi fasteignamat.
Hámarksfjárhæð sjóðfélagaláns til einstaklings, hjóna eða sambúðarmaka er kr. 75.000.000.
Lágmarksfjárhæð láns er kr. 1.000.000.
Að hámarki er lánað 70% af fasteignamati eða kaupverði eignar ef um er að ræða fasteignakaup. Ekki er miðað við verðmat.
Ef hlutfall lána frá öðrum lánastofnunum er umfram 20% af veðrými, þá er hámarks veðsetning 65% af fasteignamati eða kaupsamningsverði, ef um er að ræða fasteignakaup.
Ef áhvílandi uppreiknaðar veðskuldir að viðbættu láni sjóðsins eru hærri en hámarkslán hjá sjóðnum þá er lagt mat á það út frá hagsmunum sjóðsins, þrátt fyrir reglur um veðsetningarhlutfall.
Val er um lánstíma frá 5 árum til 40 ára.
Fjöldi gjalddaga er 12 á ári.
Nei, lánsveð eru ekki í boði.
Já, lán má greiða upp hvenær sem er án nokkurs kostnaðar.
Vinsamlega setjið lánsnúmer í skýringu greiðslu / tilvísun.
Greiða má inn á reikning 0515-26-010200 kt: 430269-4459.
Já, í þeim tilvikum ef hann á fasteignina sem boðin er fram sem veð í heild eða hluta á móti lántaka. Einnig þarf maki að gerast samskuldari ef hann er greiðslumetinn ásamt lántaka.
Ef annar aðili en maki, sem er giftur eða í staðfestri sambúð með lántaka, á eignarhlut með lántaka er ekki hægt að fá lán út á þá eign.
Lánareiknivélin reiknar úr greiðslubyrði láns og hvernig greiðslur skiptast á lánstímanum.
Þegar lán er með jöfnum afborgunum þá er greitt jafnt af höfuðstól allan tímann. Mánaðarleg greiðslubyrði er því hærri í upphafi, en fer svo lækkandi þar sem að vaxtabyrði minnkar. Eignamyndun er hraðari.
Þegar lán er með jöfnum greiðslum þá er mánaðarleg greiðslubyrði jöfn út lánstímann (ef lánið er verðtryggt þá hækkar hún). Mánaðarlegar greiðslur eru því lægri í upphafi, en eignamyndun er hægari.