Innheimtuferli
Fáðu helstu upplýsingar um hvenær og með hvaða hætti innheimta lána fer fram og hvaða kostnaður fylgir.
Tímasetningar
- Tilkynning/greiðsluseðlar send a.m.k. 7 dögum fyrir gjalddaga.
- Ítrekun send 20 dögum eftir gjalddaga með 14 daga greiðslufresti.
- Aðvörun send 40 dögum eftir gjalddaga með 14 daga greiðslufresti. Samrit sent til veðeiganda.
- Lokaaðvörun send 60 dögum eftir gjalddaga með 14 daga greiðslufresti. Samrit sent til veðeiganda.
- Lögfræðingi sent til innheimtu 90 dögum eftir gjalddaga
Greiðsluseðlar eru birtir rafrænt
- Ekki eru sendir út greiðsluseðlar vegna lána, nema óskað sé sérstaklega eftir því.
- Greiðsluseðlar eru aðgengilegir í heimabanka viðkomandi og á sjóðfélagavefnum.
Staða lána til veðeigenda
Yfirlit yfir stöðu lána eru send veðeigendum einu sinni á ári í samræmi við ákvæði laga nr. 32/2009.
Kostnaður
Greiðslugjald
140 kr
Innheimtukostnaður sjóðsins vegna lána getur mest orðið 900 kr. áður en lán er sent til lögfræðiinnheimtu. Innheimtukostnaður á stoð í reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl., sbr. 21. gr. innheimtulaga nr. 95/2008.