Ráðstöfun atkvæða sjóðsins á hluthafafundum skráðra félaga
LV hefur sett sér þá stefnu að birta upplýsingar um ráðstöfun atkvæðisréttar LV í skráðum innlendum hlutafélögum. Stefnt er að því að tíðni birtingar sé að minnsta kosti ársfjórðungslega.
Nánar um beitingu atkvæðaréttar LV úr hluthafastefnu sjóðsins
LV nýtir atkvæðisrétt sinn á hluthafafundum í félögum sem sjóðurinn hefur fjárfest í á Íslandi.
Framkvæmdastjóri sjóðsins ákveður hver skuli fara með atkvæði sjóðsins á hluthafafundum í félögum sem sjóðurinn á eignarhlut í og hefur heimild til að veita öðrum aðila umboð til að fara með atkvæðisrétt sjóðsins.
Við beitingu atkvæðisréttar styður sjóðurinn:
- tillögur sem sjóðurinn telur til þess fallnar að auka verðmæti hlutafjár og samræmast hagsmunum lífeyrissjóðsins sem fjárfestis.
- almennt tillögur stjórnar á hluthafafundum. LV lítur á það sem síðasta valkost að kjósa gegn tillögum stjórnar, að öðrum leiðum fullreyndum.
- ekki tillögur sem sjóðurinn telur að hafi neikvæð áhrif á rétt hluthafa eða fjárhagslega hagsmuni þeirra og mun í slíkum tilvikum almennt leitast við að gera stjórn viðkomandi félags kunnugt um afstöðu sína áður en til atkvæðagreiðslu kemur á hluthafafundi.
- meginregluna um að jafn atkvæðisréttur fylgi hverjum hlut í félagi. Þar af leiðir mun LV að öðru jöfnu greiða atkvæði gegn tillögum sem leiða til annarrar niðurstöðu.
- að forkaupsréttur hluthafa að nýju hlutafé sé mikilvægur réttur hluthafa til að tryggja eignarhlut sinn. Við mat á mögulegri eftirgjöf forkaupsréttar er almennt litið til rekstrarhagsmuna félagsins og eigendahagsmuna LV.