Helstu reglur um lán
Hér eru helstu reglur og viðmið sem gilda um lán til íbúðakaupa hjá sjóðnum.
Allt að 70% veðhlutfall eða 85% fyrir fyrstu kaup
Að hámarki er lánað 70% af fasteignamati eða kaupverði eignar ef um er að ræða fasteignakaup. Fyrstu kaupendur geta með viðbótarláni fengið allt að 85% veðsetningu. Ekki er miðað við verðmat. Ef hlutfall lána frá öðrum lánastofnunum er umfram 20% af veðrými, er hámarks veðsetning 65% af fasteignamati eða kaupsamningsverði, ef um er að ræða fasteignakaup. Ef áhvílandi uppreiknaðar veðskuldir að viðbættu láni sjóðsins eru hærri en hámarkslán hjá sjóðnum þá er lagt sérstakt mat á þá umsókn út frá hagsmunum sjóðsins, þrátt fyrir reglur um veðsetningarhlutfall.
Einnig þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Aðeins er lánað gegn veði í íbúðarhúsnæði.
- Húsnæðið þarf að vera að fullu í eigu umsækjanda/lántaka.
- Ef annar aðili en maki, sem er giftur eða í staðfestri sambúð með lántaka, á eignarhlut með lántaka er ekki hægt að fá lán út á þá eign.
Upphæð láns og lánstími
- Lágmarksfjárhæð láns er 1.000.000 kr.
- Hámarksfjárhæð er 95.000.000 kr.
- Lánstími er 5 til 40 ár.
Ef heildar lánsfjárhæð fer yfir 75.000.000 kr., þá má lánshæfismat ekki vera lægra en B1 og áætlað ráðstöfunarfé eftir lántöku má ekki vera lægra en kr. 180.000. Heildarupphæð áhvílandi lána, að meðtöldu nýju láni, má ekki fara yfir hámarkslán hjá sjóðnum.
Tekjur sem tekið er mið af í greiðslumati
- Að jafnaði er miðað við tekjur sem koma fram á staðgreiðsluyfirliti frá ríkisskattstjóra fyrir síðustu 12 mánuði.
- Þegar sótt er um lán með rafrænni umsókn þá fylgir henni bæði skattframtal og staðgreiðsluyfirlit og því þarf ekki að senda þær upplýsingar sérstaklega inn.
- Ef umsækjandi vill gera grein fyrir öðrum tekjum sem ekki koma fram á á staðgreiðsluskrá þá þarf að skila inn viðeigandi gögnum í umsókn þeim til staðfestingar. Sjóðurinn áskilur sér rétt til þess að leggja mat á þau gögn út frá sínum innrireglum.
- Við greiðslumat er ekki tekið mið af leigutekjum.
Ekkert uppgreiðslugjald
Ekkert uppgreiðslugjald er á húsnæðislánum og er hægt að greiða þau upp, eða greiða inn á þau hvenær sem er.
Viltu greiða inn á lán?
Vinsamlega setjið lánsnúmer í skýringu / tilvísun. Reikningur 515-26-10200. Kennitala sjóðsins 430269-4459.
Rafrænt ferli
Til að kanna greiðslugetu og hefja umsóknarferlið er farið í gegnum rafrænt greiðslumat. Þú skráir þig með rafrænum skilríkjum og kerfið leiðir þig áfram. Með upplýstu samþykki þínu sækjum við öll gögn sem nauðsynleg eru til að hefja úrvinnslu umsóknarinnar.
Athugaðu að gjald er tekið fyrir hvert greiðslumat. Þess vegna hvetjum við lántakendur til að hafa í huga viðmið sjóðsins um lántöku og viðmið Seðlabanka Íslands um hámarkshlutfall greiðslubyrðar. Samkvæmt reglunum má hlutfall greiðslubyrði fasteignalána af tekjum ekki vera hærra en 35%, eða 40% hjá fyrstu kaupendum.
Lánsréttur
Til þess að hafa lánsrétt þá þarft þú að uppfylla eitt af neðangreindum skilyrðum. Að hafa greitt iðgjöld eða í séreign:
- í 6 af síðustu 12 mánuðum fyrir umsókn.
- í að lágmarki 36 mánuði fyrir umsókn.
- Fyrstu kaupendur hafa lánsrétt eftir að hafa greitt einu sinni
Eða vera maki lífeyrisþega enda hafi maki umsækjanda átt lánsrétt.
Önnur skilyrði
Þú þarft einnig að hafa skráð lögheimili á Íslandi og lán hjá sjóðnum mega ekki vera í vanskilum. Ef um er að ræða hjón eða fólk í staðfestri sambúð er nóg að annar aðilinn sé með lánsrétt.