Þú átt rétt á láni ef þú hefur greitt iðgjöld í 6 af s.l. 12 mánuðum fyrir umsókn eða í samtals 36 mánuði fyrir umsókn.
Skráðu þig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður til að staðfesta hvort þú átt lánsrétt.
Vextir óverðtryggðra lána eru breytilegir eða fastir til 36 mánaða í senn. Í boði eru bæði lán með jöfnum greiðslum (annuitet) og jöfnum afborgunum af höfuðstól. Þegar vaxtatímabili lána með 36 mánaða bindingu lýkur getur lántakandi valið hvort hann vill að vextir verði aftur fastir í 36 mánuði eða breyta yfir í verðtryggt lán án lántökukostnaðar.
Stjórn sjóðsins ákvarðar vexti og breytingar á þeim samkvæmt nánari ákvæðum í skilmálum skuldabréfs.
Greiðslur eru jafnar út lánstímann. Greiðslur breytast þó ef vextir lánsins hækka eða lækka við endurskoðun vaxta. Lántaki greiðir höfuðstólinn hægar niður fyrstu árin en afborgun af höfuðstól fer svo stighækkandi eftir því sem líður á lánstímann. Heildarvaxtakostnaður við lánið er því hærri en af lánum sem bera jafna afborgun á höfuðstól. Á móti kemur að mánaðarleg afborgun af höfuðstól er lægri framan af lánstímanum.
Afborganir af höfuðstól eru jafnar út lánstímann. Hver greiðsla, þ.e. samtala vaxta og afborgana af höfuðstól, fer hins vegar lækkandi eftir því sem meira greiðist af höfuðstólnum. Höfuðstóll slíkra lána greiðist því nokkuð hraðar niður en lána með jöfnum greiðslum og er því heildarvaxtakostnaður við þau lægri en af lánum með jöfnum greiðslum. Ef vextir hækka eða lækka við reglulega endurskoðun hefur það áhrif á fjárhæð greiðslu.
Óverðtryggð lán hafa almennt hærri greiðslubyrði, a.m.k. til að byrja með, í samanburði við verðtryggð lán og verður þess vegna eignamyndun hraðari.
Verðtryggð lán
Óverðtryggð lán
Eiginleikar
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Gott að hafa í huga
Verðtryggð lán
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Óverðtryggð lán
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Jafnar greiðslur
Jafnar afborganir af höfuðstól
Eiginleikar
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Gott að hafa í huga
Jafnar greiðslur
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Jafnar afborganir af höfuðstól
Eiginleikar
Gott að hafa í huga
Þú átt rétt á láni ef þú hefur greitt iðgjöld í 6 af s.l. 12 mánuðum fyrir umsókn eða í samtals 36 mánuði fyrir umsókn.
Skráðu þig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður til að staðfesta hvort þú átt lánsrétt.
Aðeins er lánað gegn íbúðarhúsnæði á Íslandi í eigu lántaka.
Áhvílandi uppreiknaðar veðskuldir að viðbættu láni sjóðsins, mega við lánveitingu ekki vera umfram 70% af verðmæti veðs eins og það er tilgreint í grein þessari.
Ef veðsetning vegna lántöku eða veðflutnings lána hjá sjóðnum er umfram 65% er almennt gerður áskilnaður um að veðsetning til þriðja aðila (annars en Lífeyrissjóðs verzlunarmanna) nemi ekki hærra hlutfalli en 20% af metnu virði veðsins.
Veðsetning skal reiknuð út frá söluverði samkvæmt kaupsamningi þegar um lánveitingar í tengslum við fasteignaviðskipti er að ræða. Annars skal miða við gildandi fasteignamat.
Hámarksfjárhæð sjóðfélagaláns til einstaklings, hjóna eða sambúðarmaka er kr. 75.000.000.
Lágmarksfjárhæð láns er kr. 1.000.000.
Að hámarki er lánað 70% af fasteignamati eða kaupverði eignar ef um er að ræða fasteignakaup. Ekki er miðað við verðmat.
Ef hlutfall lána frá öðrum lánastofnunum er umfram 20% af veðrými, þá er hámarks veðsetning 65% af fasteignamati eða kaupsamningsverði, ef um er að ræða fasteignakaup.
Ef áhvílandi uppreiknaðar veðskuldir að viðbættu láni sjóðsins eru hærri en hámarkslán hjá sjóðnum þá er lagt mat á það út frá hagsmunum sjóðsins, þrátt fyrir reglur um veðsetningarhlutfall.
Val er um lánstíma frá 5 árum til 40 ára.
Fjöldi gjalddaga er 12 á ári.
Nei, lánsveð eru ekki í boði.
Já, lán má greiða upp hvenær sem er án nokkurs kostnaðar.
Vinsamlega setjið lánsnúmer í skýringu greiðslu / tilvísun.
Greiða má inn á reikning 0515-26-010200 kt: 430269-4459.
Já, í þeim tilvikum ef hann á fasteignina sem boðin er fram sem veð í heild eða hluta á móti lántaka. Einnig þarf maki að gerast samskuldari ef hann er greiðslumetinn ásamt lántaka.
Ef annar aðili en maki, sem er giftur eða í staðfestri sambúð með lántaka, á eignarhlut með lántaka er ekki hægt að fá lán út á þá eign.
Lánareiknivélin reiknar úr greiðslubyrði láns og hvernig greiðslur skiptast á lánstímanum.
Þegar lán er með jöfnum greiðslum þá er mánaðarleg greiðslubyrði jöfn út lánstímann (ef lánið er verðtryggt þá hækkar hún). Mánaðarlegar greiðslur eru því lægri í upphafi, en eignamyndun er hægari.
Þegar lán er með jöfnum afborgunum þá er greitt jafnt af höfuðstól allan tímann. Mánaðarleg greiðslubyrði er því hærri í upphafi, en fer svo lækkandi þar sem að vaxtabyrði minnkar. Eignamyndun er hraðari.