Tímabundnir greiðsluerfiðleikar
Það geta allir lent í tímabundnum greiðsluerfiðleikum um ævina og stundum breytast aðstæður. Þegar slíkt steðjar að er mikilvægt að grípa fljótt inn í aðstæður til þess að finna bestu lausnina.
Ráðgjafar okkar eru til staðar fyrir þig
Við bjóðum sjóðfélögum með lán hjá sjóðnum ýmis úrræði og hvetjum þá til þess að leita til ráðgjafa okkar og fá upplýsingar um hvaða lausnir gætu hentað.
Þú getur nálgast nánari upplýsingar um lánin sem þú ert með hjá okkur inn á sjóðfélagavef. Hafðu í huga að kostnaður er samkvæmt gjaldskrá .
Endurfjármögnun
Endurfjármögnun gæti verið ágætur kostur í sumum tilfellum. Þannig er til að mynda hægt að sameina lán, breyta um lánategund og lengja lánstíma. Allt þetta getur lækkað mánaðarlega greiðslubyrði.
Ef endurfjármagna á lán sem tekið var hjá sjóðnum þá er hægt að endurfjármagna það án greiðslumats ef eftirtalin skilyrði eru uppfyllt:
- Lánsfjárhæð er sú sama
- Greiðslubyrði hækkar ekki
- Lánstími lengist ekki
Þetta er hægt að nýta sér ef lántakar vilja til dæmis breyta um tegund láns til þess að lækka greiðslubyrði. Þetta á aðeins við lán sem tekin voru hjá sjóðnum , en ekki vegna lána hjá öðrum lánastofnunum. Ef lántaki er með fleiri en eitt lán og vill nýta sér þetta, þá er hvert lán fyrir sig endurfjármagnað sérstaklega.
Lánalenging
Ef lán var upphaflega tekið til styttri tíma en 40 ára, þá er hægt að lengja í þeim lánum. Við það lækkar greiðslubyrði lánsins.
Hafa verður í huga að þessu fylgir sá ókostur að lánið verður dýrara þegar upp er staðið því vextir og eftir atvikum verðbætur reiknast á lánið yfir lengri tíma.
Breyta greiðsluaðferð
Stundum er greiðslubyrði lána með jöfnum afborgunum* nokkuð þyngri en af lánum með jöfnum greiðslum**. Í þeim tilfellum er hægt að óska eftir því að breyta láninu í jafngreiðslulán.
Þetta hefur þau áhrif að heildargreiðsla vaxta og verðbóta (ef við á) verður hærri yfir lánstímann þar sem afborgun af höfuðstól lánsins er lægri til að byrja með.
*Þegar lán er með jöfnum afborgunum þá er greitt jafnt af höfuðstól allan tíman. Mánaðarleg greiðslubyrði er því hærri í upphafi, en fer svo lækkandi þar sem að vaxtabyrði minnkar. Eignamyndun er hraðari.
**Þegar lán er með jöfnum greiðslum þá er mánaðarleg greiðslubyrði jöfn út lánstímann (ef lánið er verðtryggt þá hækkar hún). Mánaðarlegar greiðslur eru því lægri í upphafi, en eignamyndun er hægari.
Greiðsluhlé
Hægt er að sækja um greiðsluhlé vegna greiðsluerfiðleika í allt að 6 mánuði svo sem vegna atvinnuleysis, veikinda eða slysa. Hafa þarf í huga að greiðslubyrði hækkar þegar greiða á að fullu af láninu á ný. Þegar óskað er eftir greiðsluhléi þá mun sjóðurinn óska eftir þessum gögnum:
- Afriti af síðasta skattframtali (hægt að nálgast á þjónustuvef Skattsins)
- Staðgreiðsluskrá fyrir núverandi og síðasta ár (hægt að nálgast á þjónustuvef Skattsins)
- Ástæðu fyrir umsókn
Frysting afborgana
Þegar afborgun er fryst þá greiðir lántaki aðeins vexti af láninu (og verðbætur ef við á). Þetta á einkum við um lán sem eru með jöfnum afborgunum þar sem afborgunarhlutinn af heildargreiðslu er mun hærri en ef um lán með jöfnum greiðslum er að ræða. Þegar óskað er eftir frystingu afborgana þá mun sjóðurinn óska eftir frekari upplýsingum frá umsækjanda.
- Afriti af síðasta skattframtali (hægt að nálgast á þjónustuvef Skattsins)
- Staðgreiðsluskrá fyrir núverandi og síðasta ár (hægt að nálgast á þjónustuvef Skattsins)
- Ástæðu fyrir umsókn