Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Eignir í árslok 713 milljarðar

Hrein ávöxtun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 4,3% á árinu 2018 – eignir hækkuðu um 48 milljarða

  • Hrein ávöxtun eigna nam 4,3% sem svarar til 1,0% hreinnar raunávöxtunar. Fjárfestingartekjur voru 29,7 milljarðar. 
  • Langtíma raunávöxtun er góð. Fimm ára meðalávöxtun er 4,8%, tíu ára meðalávöxtun er 4,5% og tuttugu ára meðalávöxtun er 3,9%. 
  • Eignir sjóðsins námu 713 milljörðum í árslok, hækkuðu um 48 milljarða króna.  
  • Vægi erlendra eigna í safni sjóðsins jókst á árinu og hlutfall sjóðfélagalána hækkaði nokkuð. 
  • Lífeyrisgreiðslur jukust um 11,7%, lífeyrisþegum fjölgaði um 8%.

Vaxandi eignir

Eignir hækkuðu um samtals 48 milljarða króna á árinu 2018, þar af voru fjárfestingatekjur 29,7 milljarðar, og námu eignirnar samtals 713 milljörðum í lok ársins samanborið við 665 milljarða árið áður. 

 

Mikil áhættudreifing

Eignasafn sjóðsins er vel áhættudreift. Erlend verðbréf voru um 35% heildareigna í árslok, samanborið við 33% árið áður. 15% eignanna eru í innlendum hlutabréfum. 23% eigna eru í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum.
Sjóðfélagalán námu 92,9 milljörðum, eða um 13% af heildareignum, samanborið við 82,3 milljarða og rúm 12% af eignum árið áður.

 

Stöðugur vöxtur lífeyrisgreiðslna

Á árinu 2017 fengu að meðaltali 17.083 sjóðfélagar lífeyrisgreiðslur úr samtryggingardeild sjóðsins samanborið við 15.820 árið 2017, þeim fjölgaði því um 8,0%. Lífeyrisgreiðslur úr samtryggingardeild sjóðsins voru að fjárhæð 14.315 milljónir króna. Árið áður námu lífeyrisgreiðslur 12.819 milljónum og hækkuðu því um 11,7%. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild námu 548 milljónum.

 

Sterk tryggingafræðileg staða

Tryggingafræðileg staða er mælikvarði á getu sjóðsins til að standa undir skuldbindingum sínum. Undanfarin ár hefur tryggingafræðileg staða sjóðsins verið sterk og var hún jákvæð um 5,4% í árslok, samanborðið við 6,4% árið áður.

Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn þriðjudaginn 26. mars kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík.