Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Hagsmunir sjóðfélaga og lántakenda ætíð að leiðarljósi

Vegna umfjöllunar um vaxtabreytingar hjá stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna, vill stjórn sjóðsins koma eftirfarandi á framfæri.

Fastir verðtryggðir vextir á lánum sjóðsins voru nýverið lækkaðir úr 3,6% niður í 3,4% og á sama tíma voru breytilegir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána hækkaðir úr 2,06% í 2,26%. Vextir á stórum hluta lána voru því lækkaðir í takt við þær áherslur sem fram komu í nýgerðum kjarasamningum og með hliðsjón af lækkandi raunvaxtaumhverfi. Stóryrtar yfirlýsingar um að stjórn lífeyrissjóðsins hafi einungis verið að hækka vexti lána, byggja því á afar veikum grunni, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Breytilegir vextir verðtryggðra lána breytast þann 1. ágúst næstkomandi af þeirri einföldu ástæðu að þeir voru bundnir við úrelt viðmið, sem í raun þýddi að vextirnir voru orðnir óeðlilegir. Vaxtaviðmiðið hafði miðast við breytingu á ávöxtunarkröfu ákveðins skuldabréfaflokks hjá Íbúðalánasjóði (HFF150434) en viðskipti með þann flokk höfðu minnkað það mikið að viðmiðið var ekki lengur talið eðlilegt eða raunhæft. Því var ákveðið að miða við ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa og samanburðarhæfra skuldabréfa, ásamt þeim vaxtakjörum sem eru á markaði, að teknu tilliti til áhættumats.

Fastir verðtryggðir vextir eru nú með þeim allra lægstu sem bjóðast á Íslandi og breytilegir vextir þeir þriðju lægstu á markaði. Á sama tíma er rétt að minna á að breytilegir vextir, þýða einmitt að þeir séu breytilegir og það eftir aðstæðum hverju sinni.

Sjóðfélagar með réttindi í Lífeyrissjóði verzlunarmanna eru um 170 þúsund talsins. Lántakendur sjóðfélagalána með breytilega verðtryggða vexti eru um 3.700 talsins. Stjórn sjóðsins ber skylda til að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga og ávaxta iðgjöld þeirra með besta mögulega hætti í þeim tilgangi að tryggja þeim sem bestan lífeyri. Það samræmist illa þessari afdráttarlausu skyldu að taka hagsmuni 3.700 lántaka fram yfir allan þorra sjóðfélaga með því að festa vexti sem eiga samkvæmt ákvæðum skuldabréfanna að vera breytilegir.

Ákvarðanir um vaxtabreytingar tekur sjóðurinn ætíð með hagsmuni sjóðfélaga og lántakenda að leiðarljósi, aldrei af græðgi, geðþótta, illkvittni eða til að ganga í berhögg við kjarasamninga.

Eftir áðurnefndar breytingar býður Lífeyrissjóður verslunarmanna afar samkeppnishæf og hagstæð vaxtakjör en sinnir um leið þeirri lögbundnu skyldu sinni að tryggja sem best traustan grunn undir lífeyri tugþúsunda félaga sjóðsins.

Yfirlýsingum um annarlegan tilgang eðlilegra vaxtabreytinga er vísað til föðurhúsanna.

F.h. stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna

Ólafur Reimar Gunnarsson, stjórnarformaður