Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Lífeyrisgreiðslur yfir 1,3 milljarðar á mánuði

Lífeyrisgreiðslur samtryggingardeildar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrstu átta mánuði ársins námu 10,5 milljörðum króna, sem samsvarar að meðaltali ríflega 1.300 milljónum króna á mánuði. Þetta er 11,7% meira en á sama tímabili í fyrra.

Úr samtryggingardeild er greiddur ellilífeyrir, örorkulífeyrir, maka- og barnalífeyrir. Útgreiðsla séreignarsparnaðar er ekki inni í Þessum tölum.

Fyrstu átta mánuði ársins var mest greitt út af ellilífeyri, 7,9 milljarðar króna, samanborið við 7,0 milljarða 2018. Þetta er aukning um 12,9%. Ellilífeyrisþegar voru rúmlega 12.400 á þessu ári, um 11.500 í fyrra. Þeim hefur fjölgað um 8,3% og hafa því ellilífeyrisgreiðslur á mann að meðaltali hækkað frá fyrra ári.

Næst hæstu greiðslurnar voru örorkulífeyrir, 2,0 milljarðar, samanborið við 1,8 milljarða í fyrra. Aukningin er 11,1%. Útgreiðslur maka- og barnalífeyris á tímabilinu voru 0,6 milljarðar sem er óbreytt frá fyrra ári.

Heildargreiðslur lífeyris úr samtryggingardeild fyrstu átta mánuði ársins eru því sem fyrr segir 10,5 milljarðar króna samanborið við 9,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Þetta er hækkun um 1,1 milljarð, eða sem nemur 11,7%.