Lífeyrissjóðir í samstarf vegna ÍL-sjóðs
11. nóv. 2022
11. nóv. 2022
Flestir lífeyrissjóðir landsins hafa, í ljósi mikilla hagsmuna íslenskra sjóðfélaga, myndað sameiginlegan vettvang vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs. Fjármálaráðherra hefur lýst því yfir að ríkið hafi ákveðið að grípa til aðgerða vegna stöðu sjóðsins, en stærstu eigendur skuldabréfa útgefnum af sjóðnum eru lífeyrissjóðir. Telja forsvarsmenn sjóðanna rétt að vinna saman í greiningu á stöðu sjóðanna vegna þessa. Hver og einn sjóður mun að endingu taka sjálfstæða ákvörðun um málið.
Þetta kom fram á fjölmennum upplýsingafundi sem flestir lífeyrissjóðir landsins mættu til í dag. Eins og fram hefur komið hefur fjármálaráðherra lýst yfir að ríkið ætli að grípa til aðgerða vegna stöðu sjóðsins og að þrír kostir væru fyrir hendi. Í fyrsta lagi að halda áfram að leggja ÍL-sjóðnum til fjármuni, sem fjármálaráðherra telur ekki koma til greina. Í öðru lagi að knýja sjóðinn í gjaldþrot með sérstakri lagasetningu, til að losna undan ríkisábyrgð. Í þriðja lagi að ná samkomulagi við skuldabréfaeigendur, sem að stærstum hluta eru lífeyrissjóðir, um uppgjör.
Á fundinum í dag kom fram að einhugur væri um samstarf vegna greiningar stöðunnar vegna þessa máls, enda gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir íslenska sjóðfélaga. Þegar hefur verið gengið frá ráðningu lögfræðistofunnar Logos sem lögfræðilegs ráðgjafa lífeyrissjóðanna, unnið er að því að greina lögfræðileg álitamál, hagsmuni sjóðanna – og þar með almennings í landinu – og frekari framgang málsins. Þá hafa fjárhagslegir ráðgjafar jafnframt verið ráðnir.