Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

LV hækkar lífeyrisréttindi og eingreiðsla í lok mánaðar

Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hækkar áunnin lífeyrisréttindi í sameignardeild sjóðsins um 10% sem leiðir til samsvarandi hækkunar lífeyrisgreiðslna. Hækkunin miðast við síðastliðin áramót. Hækkunin er tilkomin vegna góðrar ávöxtunar eigna undanfarin ár sem hefur styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Sjóðfélagar geta séð áhrif réttindahækkunarinnar á sjóðfélagavef sínum á mitt.live.is
Forsida Forsida

Um hækkun greiðslna til lífeyrisþega

Hækkun greiðslna elli-, örorku- og makalífeyris kemur til framkvæmda í nóvember. Samhliða mun sjóðurinn greiða í eingreiðslu uppsafnaða hækkun frá síðastliðnum áramótum. Eingreiðslan nær til um tuttugu og eitt þúsund sjóðfélaga og nemur rúmum 1,6 milljörðum króna eða að meðaltali um 76 þúsund krónum fyrir hvern lífeyrisþega, allt eftir fjárhæð áunninna lífeyrisréttinda hvers og eins.

Sjóðfélagar sem fá einnig greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins eru hvattir til þess að huga að því hvort tilefni sé til að uppfæra tekjuáætlun hjá stofnuninni.

Afrakstur farsæls rekstrar

Það er stjórn og starfsmönnum lífeyrissjóðsins sérstök ánægja að tilkynna sjóðfélögum um hækkun áunninna lífeyrisréttinda sem byggir á góðri ávöxtun eigna undanfarin ár. Meðalraunávöxtun eigna síðustu 10 ára er 6,7%, síðustu 20 ára 4,5% og síðustu 30 ára 5,4%.