Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Nýir öflugir liðsmenn til eignastýringar LV

Hjalti Þór Skaftason og Benedikt Guðmundsson hafa verið ráðnir í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.

Myndakombo Myndakombo

Hjalti hefur verið ráðinn sérfræðingur í eignastýringu sjóðsins. Hann kemur frá Capital Four í Kaupmannahöfn þar sem hann hefur starfað frá árinu 2019 sem greinandi á evrópskum og bandarískum hávaxtaskuldabréfamörkuðum. Áður starfaði Hjalti hjá Kviku banka á árunum 2014-2019, fyrst í áhættustýringu og svo í fyrirtækjaráðgjöf.

Hjalti er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá HR og M.Sc. í fjármálahagfræði frá HÍ. Einnig hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er CFA handhafi.

Benedikt hefur verið ráðinn greinandi í eignastýringu sjóðsins. Hann er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Edinborgarháskóla. Benedikt kemur frá KPMG þar sem hann starfaði sem fjármála- og rekstrarráðgjafi.

Það er fagnaðarefni að fá Hjalta Þór og Benedikt til liðs við eignastýringu LV. Það eru víða áskoranir í ávöxtunarumhverfi sjóðsins og nauðsynlegt að hafa á að skipa öflugu teymi til að takast á við þær. Hjalti og Benedikt eru því kærkomin viðbót við öflugt teymi eignastýringar sjóðsins, - segir Arne Vagn Olsen forstöðumaður eignastýringarsviðs LV.

Á eignastýringarsviði LV starfa nú 8 starfsmenn með meira en 75 ára samanlagða starfsreynslu af fjármálamörkuðum. Eignasöfn sjóðsins nema um 1.200 milljörðum króna og eru í eigu um 180 þúsund sjóðfélaga.