Prentuð yfirlit heyra sögunni til
Yfirlit eru nú eingöngu rafræn. Sjóðfélagar sem skrá netfang sitt og símanúmer á sjóðfélagavef fara í pottinn og geta unnið 50.000 króna gjafakort.
25. apr. 2023
Yfirlit eru nú eingöngu rafræn. Sjóðfélagar sem skrá netfang sitt og símanúmer á sjóðfélagavef fara í pottinn og geta unnið 50.000 króna gjafakort.
25. apr. 2023
Nýlega tók gildi reglugerð sem heimilar lífeyrisjóðum að birta yfirlit sín eingöngu rafrænt inn á sjóðfélagavef tvisvar á ári. Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun því hér eftir aðeins senda yfirlit á rafrænu formi og geta sjóðfélagar nálgast þau hvenær sem er með því að skrá sig inn á sjóðfélagavefinn, mitt.live.is. Tilkynning um nýtt yfirlit verður send á netfang sjóðfélaga í hvert sinn.
Við fögnum þessu skrefi sem styður við stefnu sjóðsins um að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sjóðsins auk þess sem kostnaður lækkar. Á mitt.live.is má líka finna stöðu réttinda, umsókna, lána o.fl.
Til að hvetja sjóðfélaga til að skrá netfang sitt og símanúmer á sjóðfélagavefinn munum við draga út þrjá heppna sjóðfélaga sem hafa skráð/staðfest netfang sitt og síma frá áramótum og til 1. júní. Skráðu þig inn strax í dag!
Nánar: