Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Samþykktabreytingar staðfestar

Unnið er að innleiðingu sem tekur gildi um áramótin.
Lv Mottaka Med Sjodfelaga Minni Lv Mottaka Med Sjodfelaga Minni

Fjármálaráðuneytið hefur staðfest samþykktabreytingar LV sem fyrirhugað var að kæmu til framkvæmda í september. Unnið er að innleiðingu sem tekur gildi um áramótin. 

Helstu breytingar um áramótin verða: 

Hærri greiðslur – aukin réttindi:

  • Hækkun lífeyrisgreiðslna um 7,18%*
  • Lenging makalífeyris
  • Tíðari endurútreikningur og þar með betri réttindi þeirra sem eru á eftirlaunum samhliða vinnu

Aukinn sveigjanleiki sem tekur mið af þörfum sjóðfélaga

  • Hægt að hefja eftirlaunatöku frá 60 ára aldri – var áður 65 ára
  • Styttri tími til að endurávinna sér framreikning vegna áfallaverndar
  • Viðmið fyrir eingreiðslu ævilangs lífeyris hækka

Þá verður aðlögun réttinda vegna breyttra lífslíka sem taka nú mið af framtíðarspám í stað sögulegra talna um lífslíkur.

Hægt er að kynna sér breytingarnar nánar hér.

*Sama á við um örorkulífeyrisþega ef viðmiðunartekjur leyfa, sbr. gr. 13.11 og 13.12.

Nánari upplýsingar um framkvæmd samþykktabreytinganna verða birta hér á vef sjóðsins innan tíðar. Að auki hvetjum við sjóðfélaga til að fylgja sjóðnum á Facebook og skrá netfang sitt á póstlista sjóðsins.