Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Sérfræðingur í eignastýringu

LV óskar eftir að ráða öflugan einstakling til starfa í eignastýringarteymi sjóðsins. 

Leitað er að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af fjármálamarkaði og mikinn áhuga á eignastýringu. Næsti yfirmaður sérfræðings er forstöðumaður eignastýringar.

Í boði er áhugavert og krefjandi starf við ört vaxandi eignasafn sjóðsins.

Helstu verkefni

  • Virkt samstarf við forstöðumann eignastýringar og aðra viðkomandi starfsmenn
  • Umsýsla eigna sjóðsins, m.a. eftirlit með ávöxtun og áhættu í eignasafni
  • Greining á væntri ávöxtun og áhættu eignaflokka til skemmri og lengri tíma
  • Greining fjárfestingartækifæra
  • Samskipti við aðila á fjármálamarkaði
  • Skýrslugerð og almenn upplýsingagjöf til stjórnenda og eftirlitsaðila

 Kröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem viðskipta-, hag-, eða verkfræði.
  • Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur
  • Haldgóð starfsreynsla af fjármálamarkaði
  • Reynsla af framkvæmd viðskipta með innlend og erlend verðbréf er kostur
  • Hæfni til að greina flókin fjárfestingarverkefni og kynna þau með skipulögðum hætti
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma

Um lífeyrissjóðinn

Lífeyrissjóðurinn hefur þjónað sjóðfélögum sínum frá 1956. Starfsmenn vinna í þágu sjóðfélaga við uppbyggingu lífeyrisréttinda og ávöxtun eigna.
Eignasafn nam ríflega 700 milljörðum króna um síðustu áramót og fer ört vaxandi. Árlega greiða um 52 þúsund sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins og um 18 þúsund njóta mánaðarlegra lífeyrisgreiðslna.
Markmið sjóðsins er að vera áhugaverður vinnustaður, gæta að jafnvægi milli vinnu og einkalífs og bjóða gott starfsumhverfi fyrir samhentan hóp til að vinna að krefjandi verkefnum.

Nánari upplýsingar um starfið

Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf og þarf umsækjandi að geta sýnt fram á að persónuleg fjármál og önnur fjárhagsleg umsýsla sé flekklaus.