Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Þjónustan á netið - Afgreiðslu sjóðsins verður lokað vegna COVID-19

Í ljósi aðstæðna höfum við ákveðið að loka skrifstofu sjóðsins tímabundið. Starfsemin verður skipulögð með þeim hætti að sem minnst röskun verði á þjónustu við sjóðfélaga og aðra viðskiptavini. Hins vegar er óhjákvæmilegt að þjónusta skerðist og að það hægi á einhverjum þáttum.

Við hvetjum sjóðfélaga til að nýta sér neðangreindar þjónustuleiðir meðan skrifstofan er lokuð.

  • Vefur sjóðsins

Á vef sjóðsins eru ítarlegar upplýsingar um lánamál, lífeyrisréttindi og annað sem varðar hagsmuni sjóðfélaga. Öll umsóknarform eru aðgengileg hér . Einnig er þar að finna spurningar og svör við algengum spurningum. Launagreiðendur sjá stöðu sína á fyrirtækjavef sjóðsins og á vef sjóðsins.

  • Sjóðfélagavefur 

Sjóðfélagavefurinn er alltaf aðgengilegur. Þar er að finna allar upplýsingar um réttindi í sjóðnum, lífeyrisgreiðslur og stöðu lána. Einnig er hægt að sækja um ellilífeyrir og örorkulífeyrir.

  • Símaþjónusta og tölvupóstur

Við erum einnig til staðar á netfanginu skrifstofa@live.is og í síma 580 4000. Skiptiborð og símaþjónusta er opin frá 9:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og frá 9:00 til 15:00 á föstudögum.

  • Bréfpóstur

Póstkassi fyrir bréfpóst til lífeyrissjóðsins er staðsettur í kjallara/hæð 0 í Húsi verzlunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík.