Yfirlit send sjóðfélögum
Yfirlit um stöðu lífeyrisréttinda sjóðfélaga í LV hafa nú verið póstlögð til allra virkra sjóðfélaga sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu apríl 2019 til og með ágúst 2019.
30. sep. 2019
Yfirlit um stöðu lífeyrisréttinda sjóðfélaga í LV hafa nú verið póstlögð til allra virkra sjóðfélaga sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu apríl 2019 til og með ágúst 2019.
30. sep. 2019
Í yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og um réttindi hans til lífeyris frá sjóðnum. Einnig koma fram upplýsingar um tilgreinda séreign og um séreignarsparnað hjá sjóðnum.
Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að kanna sitt yfirlit, ekki síst hvort iðgjöld hans hafi skilað sér til sjóðsins, þar sem iðgjöldin eru grunnur lífeyrisréttinda hans.
Á bakhlið sjóðfélagayfirlitsins er áminning um gagnsemi sjóðfélagavefsins, hvað hver og einn getur skoðað varðandi sína eigin hagsmuni eins og lífeyrisréttindi, lánamál og aðrar einkaupplýsingar sínar með því að skrá sig inn. Þar er einnig hægt að afþakka yfirlit á pappír.
Berist sjóðfélaga ekki yfirlit er rétt að grennslast fyrir um það hjá okkur, með tölvupósti eða með því að hringja.