Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Yfirlit send sjóðfélögum

Yfirlit um stöðu lífeyrisréttinda sjóðfélaga í Lífeyrissjóði verzlunarmanna hafa nú verið póstlögð til allra virkra sjóðfélaga sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu febrúar til og með september 2018.

Í yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og um réttindi hans til lífeyris frá sjóðnum. Einnig koma fram upplýsingar um séreignarsparnað hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.

Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að kanna sitt yfirlit, ekki síst hvort iðgjöld hans hafi skilað sér til sjóðsins, þar sem iðgjöldin eru grunnur lífeyrisréttinda hans.

Berist sjóðfélaga ekki yfirlit er rétt að grennslast fyrir um það hjá okkur, með tölvupósti eða með því að hringja.