Yfirlit send sjóðfélögum
Yfirlit um stöðu lífeyrisréttinda sjóðfélaga í Lífeyrissjóði verzlunarmanna hafa nú verið póstlögð til allra virkra sjóðfélaga sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu september 2017 til og með mars 2018.
02. maí 2018
Í yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og um réttindi hans til lífeyris frá sjóðnum. Einnig koma fram upplýsingar um tilgreinda séreign og um séreignarsparnað hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að kanna sitt yfirlit, ekki síst hvort iðgjöld hans hafi skilað sér til sjóðsins, þar sem iðgjöldin eru grunnur lífeyrisréttinda hans.
Með sjóðfélagayfirlitinu fylgir bréf frá framkvæmdastjóra, þar sem m.a. koma fram helstu upplýsingar um starfsemi sjóðsins á árinu 2016.
Hægt er að afþakka yfirlit á pappír hér . Með innskráningu á sjóðfélagavefinn er hægt að sjá upplýsingar um réttindi og inneign.
Berist sjóðfélaga ekki yfirlit er rétt að grennslast fyrir um það hjá okkur, með tölvupósti eða með því að hringja.