Fara á efnissvæði

Sláðu inn leitarorð

Yfirlit send til sjóðfélaga

Yfirlit um stöðu lífeyrisréttinda sjóðfélaga í LV hafa nú verið send öllum virkum sjóðfélögum sem greitt hafa iðgjöld til sjóðsins á tímabilinu september 2019 til og með febrúar 2020.

Iðgjöldin mynda lífeyrisréttindin, því er sérlega mikilvægt að fylgjast með að þau skili sér. Yfirlitið sýnir skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og um réttindi hans til lífeyris frá sjóðnum. Einnig koma fram upplýsingar um tilgreinda séreign og um séreignarsparnað hjá sjóðnum.

Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að kanna sitt yfirlit, ekki síst hvort iðgjöld hans hafi skilað sér til sjóðsins. Ef vafi er á, er gott að bera saman launaseðla og yfirlitið. 

Eðlilegt getur verið að greiðslur fyrir janúar og febrúar 2020 vanti á yfirlitið. Ef frekari greiðslur vantar eða koma þarf einhverjum athugasemdum á framfæri varðandi iðgjöldin, hafið þá strax samband við innheimtudeild sjóðsins. Sjóðurinn sér um innheimtu vangoldinna iðgjalda sjóðfélaga að kostnaðarlausu.

Með fylgir bréf frá starfsfólki sjóðsins, þar sem m.a. koma fram helstu upplýsingar um starfsemi LV á árinu 2019. Einnig er þar sagt frá helstu breytingum á vef sjóðsins.

Hægt er að afþakka yfirlit á pappír hér . Með innskráningu á sjóðfélagavefinn er hægt að sjá upplýsingar um réttindi og inneign.

Berist sjóðfélaga ekki yfirlit er rétt að grennslast fyrir um það hjá okkur, með tölvupósti eða með því að hringja.