Jón Ólafur hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og sinnir ráðgjafarstörfum ásamt stjórnarstörfum. Hann er m.a. með MBA gráðu með áherslu á fjármál fyrirtækja og MS í stjórnum og stefnumörkun í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Jón er varaformaður stjórnar LV.
Endurskoðunarnefnd
Endurskoðunarnefnd heyrir beint undir stjórn sjóðsins og starfar eftir eigin starfsreglum.
Hlutverk endurskoðunarnefndar er:
- Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila.
- Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits og áhættustýringu.
- Eftirlit með endurskoðun ársreiknings.
- Mat á óhæði og eftirlit með öðrum störfum endurskoðunarfyrirtækis.
- Setja fram tillögu til stjórnar um val á endurskoðunarfyrirtæki.
Nefndarmenn í endurskoðunarnefnd:
Jón Ólafur Halldórsson, formaður
Helga Ingólfsdóttir
Helga starfar við bókhald og verkefnastjórnun. Hún er viðurkenndur bókari og hefur lokið rekstrar- og viðskiptanámi frá EHÍ. Helga á sæti í stjórn sjóðsins.
Margret G. Flóvenz
Margret G. Flóvenz er löggiltur endurskoðandi og er með víðtæka reynslu af endurskoðunarstörfum.